Undirbuxur úr lífrænni ull – dömu

(1 umsögn viðskiptavinar)

Verð:

13.990 kr.

Dömu undirbuxur úr lífrænni merino ull

Deila þessari vöru með vinum

Vörulýsing

Síðar undirbuxur úr lífrænt vottaðri merino ull.

Dömusnið í stærðum x-small til x-large.

Litur: Svartur og minnstu stærðirnar fást einnig í hvítu

 

Umhirða:
Ullin frá Ruskovilla hefur ekki verið meðhöndluð með skaðlegum efnum og það er því ekki nausynlegt að þvo flíkina fyrir fyrstu notkun.

Best er að viðra flíkina reglulega án þess að hún sé í beinu sólarljósi eða miklum hita.

Þegar þvo þarf flíkin þarf að handaþvo hana annaðhvort í höndunum eða á handþvottakerfi (ullarkerfi) í þvttavél með mildri þeytivindu og á 30°C. Við mælum með Sonett ull- og silki þvottalegi eða Sonett wool care sem inniheldur ullarfitu sem nærir ullina. Fyrir erfiða bletti mælum við með Sonett gallsápunni. Ekki nota þvottaefni sem innihalda klór eða ensím.

Ullarflíkina má ekki þurrka í þurrkara. Eftir handþvott er best að kreysta mesta vatnið úr ullinni og rúlla henni inn í handklæði. Ekki vinda upp á ullarflíkina. Gott er að slétta úr flíkinni í eðliegt form og láta hana þorna liggjandi án þess að vera í beinu sólarljósi eða miklum hita.

Ullin hefur ekki verið meðhöndluð með efnum til varnar mölflugum.

Það fer betur með ullarflíkur að geyma þær samanbrotnar en að láta þær hana á herðatré.

Hvers vegna þolir Ruskovilla ullin ekki venjulegt þvottakerfi í þvottavél?

Frá náttúrunnar hendi er ull hlý, hún andar vel, er sjálfhreinsandi, bakteríueiðandi, eldtefjandi og umhverfisvæn, og eru þetta allt ástæður fyrir því að velja flíkur úr ull.

Hrokkin uppbygging ullartrefjanna er ein helsta ástæða þessa að ullin hefur þessa frábæru kosti en þessi uppbygging er líka ástaða þess að ullin þæfist og skreppur saman við mikinn hita og núning.

En eins og með önnur náttúruleg efni, að eftir því sem ullin er unnin meira því meira fjarlægist hún þessa náttúrulegu eiginleika og umhverfisfótsporið verður stærra.

Til þess að ull þoli venjulegan þvott í þvottavél þarf að meðhöndla ullina þannig að trefjar ullarinnar verði sléttar og ekki lengur með náttúrulegt hrokkið yfirborð. Tvær aðferðir eru helst notaðar í þessu ferli, annars vegar að nota klórsýru eða húða ullartrefjarnar með örfínni plasthúð og oft eru báðar aðferðirnar notaðar saman. Báðar þessar aðferðir eru afar óumhverfisvænar og ullin er ekki lengur þessi náttúrulega afurð eins og í upphafi. Þrátt fyrir þessa meðhöndlun á ullinni þá er hún samt oftast merkt sem 100% ull.

Ruskovilla ullin er hrein og hefur hvorki verið meðhöndluð með klórsýru eða húðuð með plasti ne öðrum óumhverfisvænum efnum.

1 umsögn fyrir Undirbuxur úr lífrænni ull – dömu

  1. Júlíana Björnsdóttir (verified owner)

    Hlýjar og góðar bæði heima og undir útifötum, hvort sem um göngutúr eða hjólatúr er að ræða.

Bæta við umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þessi síða notar vafrakökur

Með því að halda áfram samþykkir þú vafrakökunotkun.
Persónuverndarstefna.

Senda okkur ábendingu

Við erum afar þákklát fyrir allar ábendingar. Þannig að ef þú rekst á einhverja villu eða finnur ekki það sem þú leitar að þá endilega sendu okkur línu.