-20%

Silkihúfa

Verð:

6.690 kr.
5.352 kr.

Ungbarnahúfa úr 100% silki, frá Ruskovilla

Bæta á óskalista

Deila þessari vöru með vinum

Vörulýsing

Klassíst silkihúfa úr hrein silki.

  • 100% náttúrulegt silki
  • litir: hvítur, grænn, bleikur, blár

 

Fjórar stærðir:

  • 0-3 mánaða
  • 3-6 mánaða
  • 6-12 mánaða
  • 12 mánaða plús

Aðrar upplýsingar

Vörumerki

Stærðir

, , , ,

Litur á fatnaði

, , ,

Flokkur

,

Um silkihúfuna og umhirða

Um Silkihúfuna

Silkihúfan verndar opin höfuðmót ungbarnsins og veitir barninu vernd fyrir stöðugu hljóðáreiti umhverfisins sem getur angrað viðkvæma heyrn þess. Mjúkt yfirborð silkihúfunnar nuddar höfuð barnsins og getur gefið barninu öryggiskennd og róað það. Höfuð barnsins er stórt hlutfallslega í samanburði við líkama þess, sem þýðir að hitatapið sem verður um höfuðið  er mikið. Með höfuðið klætt í silkihúfu, heldur barnið jöfnu hitastigi. Barnið getur verið með silkihúfuna allan sólarhringinn þar sem eiginleikar silkis eru þeir að í kulda vermir það en í hita virkar það kælandi.

Mikilvægt er að velja alltaf rétta stærð en ef húfan er of stór er hægt að hnýta hnút efst á kollinum með stuttum spotta.

Ruskovilla silkihúfa - ljósblá

Silki inniheldur nærandi seicin sem dregur úr ertingu í húð. Silki er svipað og mannshúð og er þess vegna af mörgum sagt vera “eins og önnur húð”. Silki er mjög hlýtt efni, næstum sambærilegt við ull og fimm sinnum hlýrra en bómull. Silkiþræðir varðveita nægt loft til þess að virka sem hitaeinangrun. Þökk sé fínna og léttra þráða silkisins virkar það kaldara en ull og er þess vegna einnig frábært í heitu veðri.

Silkið í húfunni hefur ekki verið meðhöndlað með kemískum efnum og er vottað Öko-tex stöðull 100. Örugg textílvara.

 

Þvottaleiðbeiningar

Það er ekki nauðsynlegt að þvo silkihúfuna fyrir fyrstu notkun.
Silki nýtur góðs af reglulegri viðrun og þá þarf ekki að þvo húfuna eins oft.

  • best er að handþvo silkihúfuna í 35-40 gráðu heitu vatni
  • ef þvottaefni er notað þá má aðeins nota þvottaefni sem er sérstaklega fyrir silki og mælum við með Sonett ull- og silki þvottaleginum, sem varðveitir mýkt húfunnar
  • ekki má setja silkihúfuna í þurrkara
  • blettum má ná úr með Sonett gallsápunni
  • forma skal húfuna varlega í rétt form á meðan hún er ennþá rök
  • ekki má þurrka silkihúfuna í sól eða á ofni
  • ef húfan er ekki í notkun í langan tíma er best að geyma hana í umbúðunum sem hún var keypt í

 

ATH. Ef húfan er ný virkar hún oft of lítil. Bleyta skal þá húfuna vel í 35-40 gráðu heitu vatni og teygja varlega þar til réttri stærð og formi er náð.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir um þessa vöru.

Vertu fyrstur til að skrifa umsögn um “Silkihúfa”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þú gætir einnig haft áhuga á…

Þessi síða notar vafrakökur

Með því að halda áfram samþykkir þú vafrakökunotkun.
Persónuverndarstefna.

Verslun

Karfa

0 0

Minn aðgangur