-20%

Vettlingar úr ull – barna

(2 umsagnir viðskiptavina)

Verð:

4.190 kr.
3.352 kr.

Barnavettlingar úr lífrænni merino ull fyrir 1-10 ára, frá Ruskovilla

Bæta á óskalista

Deila þessari vöru með vinum

Vörulýsing

Hlýir vettlingar úr hreinni lífrænni merino ull.

  • lífrænt vottuð merino ull
  • tvöfalt efni sem gerir vettlingana sérstaklega hlýja
  • um úlnliðinn er ullarstoff til að vettlingarnir haldast á höndunum
  • barnastærð fyrir 1-10 ára
  • í rauðu og grænu
  • fást einnig í ungbarnastærð og fyrir fullorðna

 

Aðrar upplýsingar

Vörumerki

Stærðir

, , , , ,

Litur á fatnaði

,

Flokkur

,

Meðvituð vörukaup

Umhirða

Hvernig er best að þvo Ruskovilla ullarflík

Ullin frá Ruskovilla inniheldur engin skaðleg yfirborðsefni og er því ekki nauðsynlegt að þvo flíkina fyrir fyrstu notkun.

Best er að viðra ullina reglulega án þess að hún sé í beinu sólarljósi eða miklum hita. Viðrun getur komið í staðinn fyrir hefðbundna þvottaraðferð.

Þvottur
Ruskovilla ullarflíkur þarf að handþvo, annað hvort í höndunum eða á handþvottarkerfi í þvottavél með mildri þeytivindu og á 30°C.
Við mælum með Sonett ull- og silki þvottaleginum og Sonett wool care sem inniheldur einnig ullarfitu sem nærir ullina. Fyrir erfiða bletti mælum við með Sonett gallsápunni. Ekki nota þvottaefni sem innihalda klór eða ensím.

Ullina má ekki þurrka í þurrkara. Eftir handþvott er best að kreysta mesta vatnið úr ullinni og rúlla henni inn í handklæði. Ekki vinda upp á ullarflíkina. Sléttu úr flíkinni í eðlilegt form og láttu hana þorna liggjandi án þess að vera í beinu sólarljósi eða miklum hita.

Það fer betur með ullarflíkur að geyma þær samanbrotnar en að láta þær hanga á herðatré.

Ruskovilla ullin hefur ekki verið meðhöndluð með efnum til varnar mölflugu.

Þvottaleiðbeiningar - þvottatákn fyrir hreina ull

Hvers vegna þolir Ruskovilla ullin ekki venjulegt þvottakerfi í þvottavél?

Frá náttúrunnar hendi er ull hlý, hún andar vel, er sjálfhreinsandi, bakteríueyðandi, eldtefjandi og umhverfisvæn, og eru þetta allt ástæður fyrir því að velja flíkur úr ull.

Hrokkin uppbygging ullartrefjanna er ein helsta ástæða þessa að ullin hefur þessa frábæru kosti en þessi uppbygging er líka ástaða þess að ullin þæfist og skreppur saman við mikinn hita og núning.

En eins og með önnur náttúruleg efni, að eftir því sem ullin er unnin meira því meira fjarlægist hún þessa náttúrulegu eiginleika og umhverfisfótsporið verður stærra.

Til þess að ull þoli venjulegan þvott í þvottavél þarf að meðhöndla ullina þannig að trefjar ullarinnar verði sléttar og ekki lengur með náttúrulegt hrokkið yfirborð. Tvær aðferðir eru helst notaðar í þessu ferli, annars vegar að nota klórsýru eða að húða ullartrefjarnar með örfínni plasthúð og oft eru báðar aðferðirnar notaðar saman. Báðar þessar aðferðir eru afar óumhverfisvænar og ullin er ekki lengur þessi náttúrulega afurð eins og í upphafi. Þrátt fyrir þessa meðhöndlun á ullinni þá er hún samt oftast merkt sem 100% ull.

Ruskovilla ullin er hrein og hefur hvorki verið meðhöndluð með klórsýru eða húðuð með plasti ne öðrum óumhverfisvænum efnum.

Frekari upplýsingar um Ruskovilla má finna hér.

2 umsagnir fyrir Vettlingar úr ull – barna

  1. Júlíana Björnsdóttir (verified owner)

    Mjúkt og gott efni. Heldur vel hita á litlum höndum.

  2. Tinna (verified owner)

    Mjög góð þjónusta og falleg vara.
    Mjúkir og góðir vettlingar sem má nota sér eða inní skíðalúffur til dæmis. Ég keypti 7-10 ára stærð á mig fullorðna með litlar hendur 😉

Bæta við umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þú gætir einnig haft áhuga á…

Þessi síða notar vafrakökur

Með því að halda áfram samþykkir þú vafrakökunotkun.
Persónuverndarstefna.

Verslun

Karfa

0 0

Minn aðgangur