Vörulýsing
Tau-blöðru-bolti.
Nokkrir mismunandi litir í boði.
Bómullarefni, sem með blöðru, breytist í bolta í þremur einföldum skrefum.
- blöðrunni stungið inn í raufina á boltanum en blöðrustúturinn stendur út úr raufinni
- blaðran blásin upp
- snúið uppá blöðrustutinn (EKKI binda hnút) og honum stundið innfyrir raufina
Með því að snúa uppá stút blöðrunnar og ekki binda hnút er auðvelt að bæta lofti á blöðruna eða tæma blöðruna án þess að skemma hana. Þannig getur sama blaðran enst mjög lengi.
Ef boltinn verður óhreinn er blaðran einfaldlega tekin úr og og bómullarefnið sett í þvott en það má þvo það á allt að 60°C og setja í þurrkara á vægan hita.
Tvær blöðrur fylgja með en svo er hægt að nota venjulega blöðru.
Ath. blöðrurnar einar og sér eru ekki hugsað sem leikföng fyrir ung börn og eru aðeins öruggar þegar notaðar innan í tauboltanum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir um þessa vöru.