HYF11 – Mega bindi

Verð:

1.290 kr.4.490 kr.

Mega stórt og þykkt margnota bindi úr lífrænni bómull

Magnafsláttur miðast við heildarfjölda keyptra binda í öllum stærðum

Deila þessari vöru með vinum

Vörulýsing

Margnota bindi úr lífrænni bómull.

Mega bindið er mjög stórt bindi á allavegu, 43 cm að lengd, breidd að aftan um 21 cm, breidd að fram um 15 cm, breidd í miðju um 8 cm.

Þetta er stærsta og rakadrægasta bindið og það tekur við mjög miklu. Það hentar fyrir mjög mikið flæði, sem næturbindi, fyrir blæðingar eftir fæðingu, fyrir mikið flæði við tíðahvörf.

Viðmiðunarstærð frá framleiðanda, fatastærð 42-60 (ef þú ert í stærð 40 eða minna þá eru líkur á því að bindið sé of stórt).

Hvernig er mega bindið uppbyggt:

  • lífrænt bómullarvelúr næst húðinni
  • kjarni úr 4 lögum af rakadrægu lífrænu bómullarflísefni
  • hluti kjarnans er laus (til að stitta þurrktímann)
  • vatnshelt PUL efni (falið)
  • lífrænt bómulljersey á bakhlið
  • vængir á hliðum sem smellast utan um klofstykkið á nærbuxunum

 

Hægt er að fá auka megakjarna úr tveimur lögum af lífrænu bómullarflísefni, ef þörf er á ennþá meiri rakadrægni, en ekki er hægt að nota auka kjarnan einan og sér þar sem hann er hvorki með vængi né vatnsheldu efni.

 

Taubindi henta ekki bara fyrir blæðingar heldur henta þau einnig mjög vel fyrir þvagleka hjá bæði konum og körlum.

Má þvo á allt að 60°C

Honour Your Flow bindin eru framleidd í Bretlandi.

ATH! Að nota fjölnota bindi úr lífrænni bómull gæti breytt þínu lífi.

Þú gætir einnig haft áhuga á…

Bambus.is
Yfirlit

Þessi vefsíða notar vafrakökur svo að hægt sé að veita þér betri upplifun á vefsíðunni. Upplýsingar um vafrakökur eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðuna og hjálpa vefsíðunni að skilja hvaða hlutar vefsíðunnar þér finnst áhugaverðir og gagnlegir.
Vafrakökur eru t.d. nauðsynlegar til að halda utan um vörur sem þú hefur sett í körfuna.

Frekari upplýsingar má nálgast undir persónuverndarstefnu síðunnar.