Vörulýsing
Margnota bindi úr lífrænni bómull.
Regular long bindið er langt og miðlungs þykkt, 28 cm að lengd.
Þessi stærð hentar fyrir miðlungs flæði, en getur einnig hentað sem næturbindi.
Viðmiðunarstærð frá framleiðanda, fatastærð 42-48 (þessi fatastærð er þó ekki algild).
Hvernig er regular long bindið uppbyggt:
- lífrænt bómullarvelúr næst húðinni
- kjarni úr 2 lögum af rakadrægu lífrænu bómullarflísefni
- vatnshelt PUL efni (falið)
- lífrænt bómulljersey á bakhlið
- vængir á hliðum sem smellast utan um klofstykkið á nærbuxunum
Taubindi henta ekki bara fyrir blæðingar heldur henta þau einnig mjög vel fyrir þvagleka hjá bæði konum og körlum.
Má þvo á allt að 60°C
Honour Your Flow bindin eru framleidd í Bretlandi.
ATH! Að nota fjölnota bindi úr lífrænni bómull gæti breytt þínu lífi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir um þessa vöru.