Add Your Heading Text Here
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
Hvað segja viðskiptavinir
Frábær þjónusta og meiriháttar vörur!
Bambus fær mín bestu meðmæli.
Eva Hlín
Ég er alltaf jafn hissa á hvað sendingarnar eru fljótar! Pantaði seint á sunnudagskvöldi og á þriðjudagsmorgni var komið SMS um að ég ætti sendingu á pósthúsinu (bý útá landi), snilldar þjónusta sem klikkar aldrei
Linda
Stórskemmtileg leikföng! Skikkjan, kórónan og sprotinn! Fíngert og fallegt. Vinaleg og frábær þjónusta 🙂
Davíð
Spurt og svarað
Er hægt að sækja pantanir?
Já við erum með litla búð á Funahöfða 17A þar sem hægt er að sækja pantanir, annað hvort á opnunartíma eða eftir samkomulagi.
Opnunartíminn er
- mánudaga frá kl. 11 – 14
- fimmtudaga frá kl. 11 – 17
- fyrsta laugardag í mánuði frá kl. 12 – 15
Hvenær er pöntunin mín tilbúin og hvað er hún lengi á leiðinni ef ég fæ sent?
Við reynum að afgreiða allar pantanir eins fljótt og hægt er og oft er það samdægurs. Við gefum okkur þó allt að 3 daga til að afgreiða pantanir og fer tímalengdin svolítið eftir því hvenær pöntunin er gerð.
Ef þú hefur valið að sækja pöntunina þína, þá færðu tölvupóst þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.
- Á höfuðborgarsvæðinu bjóðum við upp á heimkeyrslu sem er oftast annað hvort samdægurs eða næsta dag.
- Pantanir sendar með Dropp eða Póstinum eru oftast komnar á leiðarenda 1-2 virkum dögum eftir afhendingu frá okkur. Á álagstímum getur þessi tími þó verið aðeins lengri.
- Bréfsendingar sem eru í boði fyrir sumar litlar vörur, eru u.þ.b. 4-6 virka daga á leiðinni eftir póstlagningu. ATH. Bréfsendingar eru hvorki rekjanlegar nér tryggaðar fyrir tjóni eða glötun í flutningi.
Ef þér liggur á að fá pöntunina þína þá hafðu endilega samband við reynum að redda því.
Hvað kostar að fá pöntun senda?
Sendingarkostnaður reiknast út sjálfkrafa þegar heimilisfang er sett inn.
- Heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu: 890
- Dropp afhendingarstaður: 790 – 990
Sendingarmöguleikar hjá Póstinum:
- Póstbox: 890 – 1.290
- Pósthús: 1.150 – 1.390
- Landbóstur: 1.790
- Heimsending: verð frá 1.570 *
- Pakkaport: verð frá 1.230 *
- Bréfsending: verð frá 290 **
* verð samækvæmt verðskrá Póstsins
** bréfsending er aðeins í boði fyrir sumar litlar vörur
Bjóðið þið upp á fría sendingu?
Já, þegar verslað er fyrir 18.000 kr. eða meira bjóðast eftirfarandi afhendingarmátar fríir:
- Heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu
- Dropp – sótt á afhendingarstað Dropp
- Pósturinn – póstpox
- Pósturinn – pósthús
- Pósturinn – landpóstur
- Pósturinn – pakkaport
Er hægt að skipta vöru sem pöntuð er á netinu?
Já, við bjóðum 30 daga skilafrest á vörum í upprunalegu ástandi gegn framvísun kvittunar eða ef vara er með skiptimiða.
Best er að senda okkur línu eða koma í búðina okkar á Funahöfða 17A á opnunartíma.
Ef þú sérð þér ekki fært að ná að koma til okkar innan skilafrestsins hafðu þá samband og við finnum út úr því.
Þegar vöru er skilað er gefin út inneignarnóta og miðast upphæðin við það verð sem greitt var fyrir vöruna.
Ath. Inneignarnótan rennur ekki út.
Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði?
Hér í netversluninni eru eftirfarandi greiðslumöguleikar í boði:
- Kortagreiðsla, í gegnum örugga greiðslusíðu Teya (áður Borgun)
- Aur appið, sem tengist símanúmerinu þínu
- Pei greiðslugátt, með 14 daga greiðslufrest
- Kröfuþjónusta, þar sem þú færð kröfu í heimabankann þinn
Í búðinni okkar á Funahöfða 17a eru eftirfarandi greiðslumöguleikar í boði:
- Greiðslukort (Teya)
- Aur appið, rukkun í gegnum símann
- Reiðufé
- Kröfuþjónusta í boði fyrir fyrirtæki
Eruð þið með verslun eða bara á netinu?
Við erum ekki bara á netinu heldur erum með litla verslun sem staðsett er á Funahöfða 17A þar sem hægt er að koma og skoða allar vörurnar okkar.
Opnunartími:
- mánudaga frá kl. 11 – 14
- fimmtudaga frá kl. 11 – 17
- fyrsta laugardag í mánuði frá kl. 12 – 15
Einnig er hægt að fá að koma utan opnunartíma eftir samkomulagi.
Er hægt að skipta vöru sem pöntuð er á netinu?
Já, við bjóðum 30 daga skilafrest á vörum í upprunalegu ástandi. Best er að senda okkur línu eða koma í búðina okkar á Funahöfða 17A á opnunartíma.
Er hægt að fá skiptimiða fyrir gjafir?
Já alveg sjálfsgt. Skiptimiðinn gildir í 30 daga.
Varan sem ég hef áhuga á er uppseld, hvenær kemur hún aftur?
Er hægt að kaupa hjá ykkur gjafakort?
Já við bjóðum upp á gjafakort.